Félagsmálin ástríða
Ég hef alla tíð verið félagslyndur maður. Ég gekk í Kiwanishreyfinguna aðeins rétt rúmlega tvítugur og starfa þar enn. Þar hef ég gengt öllum stöðum innan klúbbsins sem ég er í, og er nú svæðisstjóri hreyfingarinnar.
Í seinni tíma innan Kiwanis hef ég frekar verið í að leiðbeina mönnum hvernig hreyfingin er byggð upp og hjálpað mönnum sem eru ekki vissir í hvernig eigi að bera sig að, þess vegna get ég sagt að Kiwanishreyfingin hefur gefið mér mikið og gert mig að betri manni.
Ég er forfallinn skotveiðimaður og hef stundað skotveiði frá unga aldri. Skotveiði er eitthvað þar sem maður nær að sameina tvenn áhugamál útivist og skotveiði.